mánudagur, desember 01, 2003

Komið að lokum 

Þá er önnin að verða búin. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Heimasíðan mín tilbúin eins og ég vil að hún verði. Að vísu var ég að rembast við að setja inn lag í gær en kerfið var seinvirkt og eitthvað gekk þetta illa þannig að þið verðið víst að verða án lagstúfsins. Ekki nema að ég reyni aftur í kvöld. Í gærkvöldi fór ég á aðventukvöld í Laugarneskirkju. Mikið var það góð stund og mér finnst aðventan ekki byrjuð fyrr en eftir þetta kvöld í kirkjunni. Boðið var til súkkulaðidrykkju í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. Við eigum von á kórnum í okkar árlega jólaglögg um næstu helgi. Ég er í óða önn að undirbúa það og svo er það próflestur. Að lokum vil ég þakka öllum sem þetta lesa og voru mér samferða á þessu námskeiði góðrar og gleðilegrar aðventu, og auglýsi enn og aftur frábæra ljúfa jólaplötu DES sem fæst í næstu hljómplötuverslun.
Stórt knús til ykkar allra,
Gréta

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Leikhús enn og aftur 

Þá er ég búin að heimsækja Borgarleikhúsið tvisvar þessa viku. Það mætti halda að ég hefði ekki nóg að gera í skólanum...hummm... en það er nú öðrunær. Verkefnatörn að baki, að vísu á ég eftir að klára heimasíðuna mína endanlega. Myndasíðan er ekki kominn inn eins og ég vil að hún verði. Það er gaman að horfa og hlusta á glærurnar hjá krökkunum í staðbundnanáminu. Þó að tækniörðuleikar geri vart við sig sumstaðar. Í heildina gott. Það væri gaman að fá stöku sinnum fyrirlestra frá kennurum námskeiða með hljóði. það kemur manni í meiri snertingu við skólann. Þuríður sem kenndi Aðferðarfræði í fyrra gerði þetta nokkru sinnum og var það mjög gott og gagnlegt.
Aftur að borgarleikhúsinu, Lína Langsokkur var frábær sýning og ekki var Grease sem við sáum í gær síðri. Það var FRÁBÆR sýning, kröftug og flott.

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Nú jæja... 

Nú - það er alveg ótrúlegt hvað tíminn æðir áfram. Við Veiga erum búnar að vera alveg á kafi í verkefnavinnu og vorum að ljúka vettvangsnáminu í Melaskóla. Það heppnaðist alveg einstaklega vel. Jæja er einhver búin að kaupa jólaplötuna sem ég mælti með? Við erum á leið í leikhús með þá stuttu. Hún er frekar spennt að sjá Línu Langsokk.
Svo er það jólaundirbúningur og próflestur.

föstudagur, nóvember 14, 2003

Góðir listamenn 

Mig langar að benda á frábæra plötu Guðrúnar Gunnarsdóttur Óðurinn til Ellíar. Svo er komin út ný jólaplata með Gunnari Gunnarsyni, hún ber heitið Des, alveg einstaklega ljúf og góð. Svo eru hér nokkar góðar!
Athugið þetta ef ykkur vantar góðar jólagjafir!
Hó,hó,hó...

Í vikulok 

Þá er vikan að líða. Við Veiga erum í æfingakennslu í Melaskóla og er ein vika eftir. Allt gengur vel og er alveg ótrúlegt hvað börnin eru dugleg í tölvuvinnu. Við vorum með lítið verkefni fyrir þau í power point og paint, sem gekk ótrúlega vel og þau eru bara 6 ára.
Ég fór á mjög góða tónleika í gær með Guðrúnu Gunnarsdóttur í Salnum.
Hún var yndisleg hún Guðrún söng eins og engill og kynningarnar voru svo skemmtilegar og mikill húmor í þeim. Dagurinn fer í nám og ég er að hugsa um að skella mér í sund með litluna mína eftir hádegið.

laugardagur, nóvember 08, 2003

Laugardagur 

Þá er helgin framundan. Ég er búin að vera hálf lasin með hálsbólgu og höfuðverk. Þannig að mér finnst ég koma ósköp litlu í verk. Ég setti skólaverkefnið inná vefinn minn á fimmtudaginn. Þá er bara eftir að laga síðuna til og setja myndasíðuna upp svo vel sé. Við erum að fara í barnaafmæli á morgun Með Katrínu Sól, og ég var að hugsa um að fá mér göngutúr núna (og kaupa afmælisgjöf) og vita hvort súrefnið hjálpi ekki til að hressa mig við. Við stöllur sem vinnum að M.M verkefninu hjá Stefáni hittumst á miðvikudagskvöldið og ætlum að vinna margmiðlunarefni um það sem gæti verið gott að vita fyrir ungt fólk þegar að það fer að búa.
Þangað til næst...

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Kalt í veðri 

Ég er nú svo loppin á fingrunum að ég get varla skrifað. Það er ansi kalt úti núna. Í morgun fór ég með barnahópin minn á Tjarnarborg á Bókasafnið við Tryggvagötu. Við fengum þar fræðslu um hvernig maður hagar sér á bókasafni. Annars mjakast námið hægt en örugglega. Ég þarf að fara að koma skólaverkefninu inná netið. Það er nánast fullunnið bara eftir að lesa það betur yfir.
Þangað til næst...

laugardagur, nóvember 01, 2003

Laugardagur 

Búin að vera frekar dugleg í dag. Byrjaði morguninn á því að læra og fór svo í sund með Gunna mínum og Katrínu Sól. Eftir sundið fórum við í smá snatt. Kom m.a. við í sápubúð á laugaveginum sem við elskum. Keyptum baðsalt og annað gott í baðið. Það jafnast ekkert á við gott bað á kvöldin.
Þá var farið og keypt inn fyrir kvöldmatinn. Pizzudegið er að hefast, ég ætla að baka pizzu með serranó skinku og ruccola salati. Set líka basil og hvítlauk. Hver veit nema við fáum okkur smá rauðvínslögg með. Skál!

fimmtudagur, október 30, 2003

Kuldaboli 

Jæja þá er veturinn gengin í garð. Mikið var svalt að koma út í morgun. Ég var löt í morgun og fór ekki í sund. Ég sé svo alltaf eftir því að hafa ekki drifið mig af stað.
Nú eru flestir skólar í vetrarfrí og börnin í leikskólanum einnig mörg í fríi allavega þau sem eiga systkin í grunnskólanum. Einhverjir eru fara út á land eða til útlanda. Ég held að það sé gott mál að taka vetrarfrí til að brjóta upp hefbundið starf skólanna. Þið getir séð afrakstur verkefnavinnu okkar Veigu með börnunum í Melaskóla hér. Vinnan gekk vel í alla staði og verður gaman að halda áfram þar sem frá var horfið.
Verkefnavinnan í náminu potast áfram það verður gott að sjá fyrir endan á þessu, þó að oft sé gaman. ; )

miðvikudagur, október 29, 2003

Sjónvarpsefni 

Það er ekki mikill tími sem gefst til að horfa á sjónvarpið. Það eru þó einn þáttur sem ég byrjaði að fylgjast með þegar að hann hóf göngu sína en það er danskur þáttur um skötuhjúin Nikolaj og Julie
Skemmtilegur þáttur um mannleg málefni.
Svo er það stjörnuleitin á stöð 2. Það er eitthvað sem togar í mann að fylgjast með hver verður fyrir valinu.
Bara Svona smá pælingar...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?